Það er aðfangadagskvöld, ég er staddur í Ciudad de Guatemala, úti heyrist sírenuvæl, hundar gelta og á neðri hæðinni er verið að blast-a eitís hittara (ásamt myndböndum) í einhverskonar vídeó-hljóðkerfi. Ansi ólíkt því sem maður á að venjast á Íslandi, en afar áhugavert engu að síður.
Því datt mér í hug að starta þessu bloggi, sem ég stofnaði fyrir hina miklu reisu sumarið 2009 fram á sumarið 2010, þar sem mér tókst ekki að blogga, en mun eflaust rifja upp ýmislegt úr því og skiptanemadvölum mínum hingað og þangað um leið og ég rek núverandi ferðalag mitt um hina latnesku Ameríku.
Klukkan er rúmlega 18 hérna og fyrir 2 klst voru enn verslanir opnar og fólk á fullu að kaupa, redda, og jafnvel borða McDonalds og steikta kjúklingavængi., sem er einmitt það sem ég fékk í hádegismat í dag.
Í kvöld verða svo 2 risastór svínalæri borðuð. sem hefur tekið 2 daga að elda (með undirbúningi). Það er því eins gott að skella sér í sturtu og klæða sig í betri fötum, því það verða 20 manns hér á eftir og 1 Íslendingur að snæða, drekka og sennilega syngja og skemmta sér langt fram á nótt eins og þetta lítur út þessa stundina.
Gleðileg jól frá Gvatemalaborg! Feliz Navidad desde la Ciudad de Guatemala!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment