Jóladagur er að kveldi kominn, ég er nokkurn veginn búinn að pakka fyrir ferðalag morgundagsins, og enn er nóg eftir af svínalæri gærkvöldsins; skv. ömmunni, þá verður það borðað alla vikuna...
En ég þarf ekki að áhyggjur af því að fá of mikið svínakjöt, því á morgun er ferðinni heitið til kærustu gestgjafa míns, sem býr í Huehuetenango, 279km héðan, sem þýðir 5klst rútuferð. Þar verðum við fram yfir áramót, en verð að vera mættur stundvíslega á Roosevelt spítalann kl. 7:30 þann 2. jan n.k.
Dagurinn í dag var rólegur, enda allir frekar "þreyttir" eftir gærkvöldið. Morgunmatur, sem samanstóð af afgöngum gærkvöldsins, var því snæddur um 11, með ömmunni, afanum, frænkunni, en frændinn sem drakk hvað mest í gærkvöldi, og var fyrstur í rúmið, var rokinn á skrifstofuna, og borðaði því ekki "morgunmat" fyrr en kl. 15. Klukkustund síðar var síðan "hádegismatur", með sömu uppröðun og morgunmaturinn. Sem betur fer var enginn formlegur kvöldmatur, því eina hreyfingin í dag var göngutúr um hverfið með hundinum Cheeky og eigendum hans. Það verður áhugavert að sjá hvað bíður mín í Huehuetenango, bæði að borða og allt annað.
Jólahaldið hér er a.m.k. nokkurn veginn á enda, en á hádegi í og aftur kl. 18 óskuðu allir hvort öðru gleðilegra jóla um leið og flugeldar fóru á loft úti. Á morgun halda flestir aftur til vinnu, á meðan ég og Gabriel höldum á vit ævintýranna.
Og talandi um ævintýri, þá var heimsóknin á spítalann á Þorláksmessu sú áhugaverðasta, en það var eins og að stíga inn í senu í bíómynd, sem sviðsett er á spítala í lok seinni heimsstyrjaldarinnar í Bandaríkjunum, því útlitið var slíkt innandyra (enda sennilega byggður um það leiti m.v. nafnið "Roosevelt"). Ég átti von á þetta yrði slæmt, en þó ekki alveg svona gamaldags og skítugt. Hverju sem því líður, þá á þetta eftir að vera afar áhugaverð, en jafnframt öðruvísi og lærdómsrík spítaladvöl.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Njóttu þín á ferðalagi ykkar vinanna frændi minn. Miðað við lýsingar á spítalanum þá held ég að við hér uppfrá megum vera ánægð með okkar sjúkrahús, hér er þó allavega þrifið. Góða ferð.
ReplyDelete