Í kvöld sat ég ásamt fjölskyldunni og beið eftir að fólk mætti. Allir voru seinir, sumir meira en aðrir. Því var sett á borð nasl og snakk, skenkt víni í glös, og beðið eftir að allir mættu. Á meðan var drukkið og naslað, hlustað á tónlist níunda og tíunda áratugsins í sjónvarps-/hljóðkerfinu, sem var búið að koma upp (engin jólalög), sem breyttist í latínó slagara, ballöður og epískt popp eftir því sem leið á. Karlarnir drukku aðallega viskí á klaka, a.m.k. tvöfaldur í hvert glas, mikið af klaka og fyllt upp í með sódavatni. Krakkarnir fengu kók á meðan dömurnar fengu vín. Eins og gefur að skilja, leið ekki á löngu þar til helmingur samkomunnar var oðrinnokkuð ölvuð, en þá var komið að matnum, hver samanstóð aðallega af sérlega góðu svínalæri, alls konar meðlæti og víni eftir þörfum; en þörfum virtist mikil hjá karlmönnunum á svæðinu. Þegar allir höfðu borðað, stóðu allt í einu flestir upp, krakkarnir hurfu inn í stofu að spila, einhverjir inn í eldhús að spjalla, karlarnir út í horn að reykja eða eitthvert annað á meðan ég sat eftir og spjallaði við gestgjafa minn. Stutt var í miðnætti þegar fyrstu gestirnir þurftu að fara í annað boð, en á slaginu miðnætti byrjuðu allir að óska hvort öðru gleðileg jól, um leið og flugeldar fóru á loft um alla borg og allt í kring. Skyndilega var himininn og umhverfið orðið reyk- og hljóðmettað, líkt og á nýársnótt á Íslandi. Þetta varði í gott korter, áður en þeir sem enn voru með sjálfum sér, eða höfðu pláss, fóru að fá sér eftirrétt. Engir pakkar voru opnaðir, nema þeir sem ég afhenti gestgjöfum mínum, auk ömmunni og afanum, en afinn var orðinn það drukkinn, að hann vissi svosum ekkert um gjöfina. Amman, þrátt fyrir bága heilsu, þakkaði þó fyrir sig. Eftir flugeldana tíndist fólk fljótt í burtu, og var tekist til við að ganga frá, þeir sem eftir voru. Enn var heilt svínalæri og gífurlegt meðlæti eftir, sem verður víst borðað næstu daga (og byrjað verður aftur í fyrramálið að klára afganga...).
Þetta var því hin áhugaverðasta kvöldstund, hér á Aðfangadagskvöld í Guatemala-borg. Heldur meira áfengi en á Íslandi, álíka mikill matur, mikil tónlist og m.a.s. Karíókí, þegar fólk var búið að drekka í sig kjarkinn, og engin jólalög þrátt fyrir árstímann. Það verður áhugavert að sjá hve marga daga afgangarnir endast.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Við hér á Djúpavogi óskum þér gleðilegra jóla og farsæls nýs árs og vona að þessi dvöl þín þarna í Guatemala verði ánæjuleg. Áhugaverð lýsing hjá þér varðandi jólahaldið.
ReplyDeleteTakk sömuleiðis Magnús. Vona að þið hafið það sem best yfir hátíðirnar!
DeleteGleðileg jólin félagi. Skemmtilegt að heyra frá þessari framandi jólastund. Hafðu það gott úti.
ReplyDeleteTakk sömuleiðis Toggi!
DeleteÞetta hefur verið áhugavert Aðfangadagskvöld og gaman að lesa lýsingarnar. Ég sé stórfjölskylduna fyrir mér eftir drykkjuna og allan matinn. Hló upphátt þegar þú lýsir flugeldasýningu og óskum um gleðileg jól á miðnætti. Gaman að kynnast öðrum menningarheimum.
ReplyDelete